Send As SMS

fimmtudagur, mars 16, 2006

Krúa Thai for dummies

Það hefur borið á því undanfarið að ég hafi borðað mikið á Krúa Thai, ekki að ég hafi fitnað, ég er alveg jafn horaður og alltaf. En svo að fólk fari ekki að eyða peningunum sínum í vitleysu þá ætla ég að mæla með nokkrum réttum sem allir eiga það sameiginlegt að vera aftast á matseðlinum, skrítin pæling að setja alla bestu réttina aftast á matseðilinn...

#29 Pad Ped (nautakjöt, forðist fuglaflensu)
Vel kryddað nautakjöt með thai basil og piparkornum, best að biðja um hann sterkann, hann á að brenna. Anís, chilli og sykur eru aðal playerarnir í þessum rétti.

#31 Cúú-chii fiskur
Mjög basic fiskur með rauðu karrí / kókosmjólk. Hef aldrei fengið vondann fisk á Krúa.

#32 Blaa laad prikk geng
Rótsterkur fiskur í kryddhjúp, alger snilld, mjög minimal.

#33 Blaa padd pong kari
Mildur fiskur í kókos-karrí-snilld. Ekki sterkur, tilvalinn fyrir konuna, en langt því frá að vera væminn. Fiskurinn á að vera ýsa.

#36 Naam Dogg nautakjöt
Algert snilldar salat, steikt nautakjöt í lime,koriander og fiskisósu.

#37 Jamm Nua (Yum nua)
Annað thai nautakjötssalat sem er snilld, brennir smá en er sársaukans virði.

#2 Pad Thai
Núðlur alheimsins... hnetur og rækjur. Skammturinn er ca. 500g þannig einn er nóg fyrir 2.


Munið bara...

Kai = kjúklingur
Khao = hrísgrjón
Kha = engifer
Tom = sjóðandi
Chan hew = ég er svangur!

Ekki klúðra þessu

N

ps. Ef það kom ekki nógu skýrt fram þá er þetta best-value-for-money norðan alpafjalla og í top 3 thai á íslandi... ban-thai, síam og krúa... Respect!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home